29.7.2009 | 21:14
Kotmót í Fljótshlíð um helgina.
Gamall fiðringur hreiðrar um sig þegar Kotmót nálgast. Tjald, svefnpoki og smá nesti í poka, gítar og regnföt , fullthús af gleði og blessun er KOTMÓT. Kotmót verður haldið í sextugasta skipti í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Hugsið ykkur, Sextíuára afmæli þar sem þúsundir koma saman til að taka þátt í útihátíð sem er án vímuefna. Barnamót Unglinga geim og tónleikar , samkomur í Örkinni þar sem Guðsorð er prédikað , mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Er hægt að hugsa sér betri helgi ? Kotmót er líka eins og risastórt ættarmót, fjölskyldur sameinast, ættingar og vinir sem búa víðsvegar um landið hittast í Kotinu og þá er nú gaman.
André Crouch ásamt hljómsveit og Gospelkór mun heiðra hátíðargesti á sunnudagskvöldið 2. ágúst kl.22.00 magnaðir tónleikar í Örkinni, eins gott að mæta tímanlega.
Heilbrigð skemmtun fyrir alla, kiktu á heimasíðuna KOTMÓT
Sjáumst í Kotinu
Aglowkonur á Kotmóti; Bryndís,Unnur og Helena ( og Rútur )
Guð blessi ykkur.
Helena
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Trúmál, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.