15.10.2008 | 11:06
Bros og knús í hvert hús !
Skólasystir mín sendi mér skemmtilegan póst í dag sem ég ætla að deila með ykkur. Yfirskriftin er bros og knús í hvert hús. Um leið og ég skrifa þessar línur bið ég Drottinn Guð að umvefja okkur öll með stóru knúsi í dag, gefa lausn inní gjaldeyrismál og viðskiptaumhverfi þjóðarinnar. Bros og knús kostar ekkert en gefur óendanlega mikið af sér.
Fjölskylduhópknús á hverjum morgni
Einstaklings og hópknús á vinnustöðum
Knúsaðu börnin kvölds og morgna...ekki bara þessa viku
Knús fyrir svefninn og allir sofa betur
Knús í alla skóla stóra sem smáa:
Nemendaknús - bekkjarknús - kennaraknús - knús í nesti -
knús sem heimaverkefni - húsvarðaknús - bókasafnsknús - viðurkenningaknús.
Knúsaðu maka þinn....oft....oft...og aftur.
Eldra fólk þarfnast oft meiri snertingar en aðrir og það er líka viðkvæmara fyrir stöðu mála og hefur áhyggjur af framtíð barnanna sinna. Í dag skaltu fara og heimsækja ömmu, afa, frænda , frænku eða einhvern eldri borgara sem þú þekkir og gefa honum knús. Eldri fólk á nóg af súkkulaði, það þarf bara hlýtt og gott faðmlag og eitthvað af tímanum ykkar.
Sendu knús til þeirra sem eru lengra í burtu......
SMS knús.....
Email knús......
Bloggknús.......
Hringdu og gefðu knús.....
Ef þú gefur af þér, þá færðu það til baka - gefðu knús
Lestu um knúsið hér
www.julli.is
Aglow konur í Garðabæ senda ykkur blessunar kveðjur
og stórt knús, Guð elskar þig heitt og innilega.
Helena
Flokkur: Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:11 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.