17.10.2008 | 12:15
Góðar fréttir !
OLíufélögin lækka bensin um tæplega 8 kr. Bravó !
Auðgum andann ókeypis um helgina frítt inná tónleika
Frítt á sinfóníutónleika í kvöld og á laugardag í Háskólabíó.
Frítt á tónleika með Söru Kelly í KROSSINUM 17-19 okt.
Sara Kelly hefur tvisvar verið tilnefnd til Grammyverðlauna
Frítt inná UNGSAM í húsnæði Samhjálpar á sunnudagskvöldið,
flott að enda helgina þar, góður fílingur!
Góð tilboð í Fjarðarkaupum,einfaldlega besta kaupfélagsbúðin
Belgia og Luxumburg vilja hjálpa Íslandi, kannski bænasvar hér!
Ættingjar og vinir ætla að safnast saman í kvöld og laugard. borða
saman og halda kaffibjóð ! Frábært ódýrt og gott, auðgar vináttuna!
Yndisleg kveðja frá Jesú til okkar í Matt.6: 25 -
Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin?
Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim?
Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? Eða: við hæð sína.
Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna.
En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. 30Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?
Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa.
En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur.
Hverjum degi nægir sín þjáning.
Guð blessi ykkur elskurnar allar stundir.
Helena
16.10.2008 | 12:17
All the Way to Heaven
All the Way to Heaven
Lyrics: Solveig & Ken Henderson
Music: Solveig L. Henderson
All the way to Heaven
Goes this song.
All into the throne room
I imagine all the angels sing along.
Singing praises to the Father
To Whom all praise belongs.
All the way to Heaven goes this song.
All the way to Heaven.
Goes my praise
All into the throne room
I imagine seeing Jesus face to face.
Singing praises to my Master
Whos saved me by His grace.
All the way to Heaven goes my praise.
Holy is the Father
Worthy is the Lamb
Glory to the Holy Spirit
The Three in One
The Great I Am.
All the way to Heaven
Goes my praise.
All into the throne room
I imagine all the saints from every age.
Singing praises to the Spirit
Whos set our hearts ablaze
All the way to Heaven goes my praise.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 11:06
Bros og knús í hvert hús !
Skólasystir mín sendi mér skemmtilegan póst í dag sem ég ætla að deila með ykkur. Yfirskriftin er bros og knús í hvert hús. Um leið og ég skrifa þessar línur bið ég Drottinn Guð að umvefja okkur öll með stóru knúsi í dag, gefa lausn inní gjaldeyrismál og viðskiptaumhverfi þjóðarinnar. Bros og knús kostar ekkert en gefur óendanlega mikið af sér.
Fjölskylduhópknús á hverjum morgni
Einstaklings og hópknús á vinnustöðum
Knúsaðu börnin kvölds og morgna...ekki bara þessa viku
Knús fyrir svefninn og allir sofa betur
Knús í alla skóla stóra sem smáa:
Nemendaknús - bekkjarknús - kennaraknús - knús í nesti -
knús sem heimaverkefni - húsvarðaknús - bókasafnsknús - viðurkenningaknús.
Knúsaðu maka þinn....oft....oft...og aftur.
Eldra fólk þarfnast oft meiri snertingar en aðrir og það er líka viðkvæmara fyrir stöðu mála og hefur áhyggjur af framtíð barnanna sinna. Í dag skaltu fara og heimsækja ömmu, afa, frænda , frænku eða einhvern eldri borgara sem þú þekkir og gefa honum knús. Eldri fólk á nóg af súkkulaði, það þarf bara hlýtt og gott faðmlag og eitthvað af tímanum ykkar.
Sendu knús til þeirra sem eru lengra í burtu......
SMS knús.....
Email knús......
Bloggknús.......
Hringdu og gefðu knús.....
Ef þú gefur af þér, þá færðu það til baka - gefðu knús
Lestu um knúsið hér
www.julli.is
Aglow konur í Garðabæ senda ykkur blessunar kveðjur
og stórt knús, Guð elskar þig heitt og innilega.
Helena
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 13:57
Fyllum eldhúsin af góðum brauðilm !
Aglow dúllurnar eru duglegar að föndra við bakstur og töfra fram gæða brauð sem gleðja bændur og hjú. Strákarnir mínir fá stjörnur í augun þegar móðir þeirra setur á sig svuntuna og bakar með kaffinu. Framundan er besti timinn til að gleðja fólkiið sitt og hafa kaffibjóð og knúsa hvort annað.
Hérna fylgir Halldóru brauð og Sivjar brauð;
DÖÐLUBRAUÐ.
2. egg
2. bollar púðursykur
Þetta er stífþeytt.
1 tsk sódaduft
2 tsk. ger
2 tsk .vanilla
1 tsk. salt
4 1/2 bolli hveiti, ég hef 3 bolla
1 bolli smátt skornar döðlur
1/2 bolli sjóðandi vatn
Vatninu er helt yfir döðlurnar
og látið standa smá stund
2 matsk brætt smjörlíki bætt í vatnið, ég setti 2 matskeiðar matarolíu
Öllu hrært saman og bakað á 200°gr. hita þar til brauðið er tilbúið.
( Best er að tala í símann á meðan brauðið bakast!)
Bananabrauð
3 þroskaðir bananar
1 bolli sykur
2 bollar hveiti
2 egg
1tsk natron
1 tsk lyftiduft.
Bananar stappaðir og öllu saman, sett i form og bakað við blástur 150 gráður í 1 klst.
Njótið vel
ps. Ekki gleyma borðbæninni því hún gleður og er ómissandi með veislunni.
Góður Guð blessi ykkur öll og umvefji.
Helena
13.10.2008 | 22:59
We can send you? Medicines, money???
Í dag fékk ég e-mail frá útlöndum Aglow vinkonur mínar í Alaska ,UK og USA sendu kveðju afskaplega fannst mér notalegt að fá hlýja bænakveðju frá fólki sem hefur aldrei heimsótt landið mitt en biður fyrir okkur á hverjum degi. Stelpurnar í USA fylgjast vel með og hafa verulega miklar áhyggjur af ástandinu ég varð hálf vandræðaleg þegar þær spurðu ; Do you need money and medicine ? Það er gott að eiga vini í útlöndum!
Já, við þurfum lyf til að lækna spillinga-pestina og peninga til að rétta af heimilin.
A cruel wind / Fýkur yfir hæðirFor most of the last century, Iceland was little more than a rest stop for North Atlantic fishing fleets trawling the waters between Greenland and the Faroe Islands.Reykjavik, where much of the island's population of 320,000 is based, still feels like a provincial port. Taxi drivers wave to the president and there is a sense that most people are linked by blood, business or politics. But for all its sleepy air, the Icelandic capital has been transformed over the past decade. A headlong expansion into foreign markets brought the country influence out of proportion to its size and made its population one of the richest, per capita, in the world......... In the words of one UK investor: "The Icelandics had better get their fishing rods out. They've got a lot of cod to catch to make up for what we've lost".
6.10.2008 | 18:21
GUÐ BLESSI ÍSLAND
Ég tek undir með forsætisráðherra að þjóðin þarfnast blessunar frá himninum Guð blessi Island
Á þessari stundu vil ég lyfta hjarta mínu upp og leita inn í bænina, tala við Guð, ég hvet þig til að taka undir með mér,leitum Guðs saman í bæn. Guð heyrir, hann hlustar !
Ég bið Drottinn Guð að fyrirgefa mér og þjóðinni minni, breytni okkar og andvaraleysi.
Ég bið þess að Drottinn Guð gefi forsætisráðherra, ríkisstjórn, alþingi og stjórnsýslu landsins Guðlega visku og vísdóm fyrir þann tíma sem framundan er. Ég bið þess að ráðamenn sameinist um að finna lausn þjóðinni til heilla.
Ég bið þess að þjóðin öll leiti inn í bænina,snúi sér til Guðs og hrópi eftir hjálp.
Ég bið þess að þjóðin öll þjappi sér saman í einingu, sameinuð munum við rísa upp með hjálp Guðs sem færir okkur styrk og kraft og endurnýjun fyrir atvinnulifið,heimilin og fjölskyldurnar.
Ég bið fyrir atvinnulífinu og fyrirtækjum landsins, ráðamönnum og stjórnendum þeirra um Guðlega visku og vísdóm, ég bið þess að Guð gefi sérstaka náð inn í atvinnulífið.
Ég bið fyrir fjölskyldum, foreldrum, hjónum, einstaklingum, öryrkjum og eldri borgurum,börnum og unglingum. Ég bið Guð að umvefja og styrkja eininguna, ástina, vináttuna, hjálpa okkur öllum að horfa fram á veginn, kveikja nýja von og bjartsýni í huga okkar. Ég bið Guð að blessa fjármál okkar, margfalda innihaldið í frystikistunni og brauðkassanum,margfalda þær krónur sem eru í vasanum.Ég bið Drottinn Guð að græða upp land okkar
þjóð mín, sem nafn mitt hefur verið hrópað yfir auðmýkir sig, biður, leitar auglits míns og lætur af illri breytni sinni, mun ég heyra á himninum, fyrirgefa synd hennar og græða upp land hennar. Héðan í frá munu augu mín vera opin og eyru mín munu hlusta á bænir á þessum stað2. kronikubók 7; 14-15
Sálmur 91
1Sá er situr í skjóli Hins hæsta
og dvelst í skugga Hins almáttka
2segir við Drottin:
Hæli mitt og háborg,
Guð minn, er ég trúi á.
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans,
frá drepsótt eyðingarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum,
undir vængjum hans mátt þú hælis leita,
trúfesti hans er skjöldur og vígi.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar
eða örina sem flýgur um daga,
6drepsóttina sem læðist um í dimmunni
eða sýkina sem geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið
og tíu þúsund þér til hægri handar
þá nær það ekki til þín.
8Þú munt sjá með eigin augum,
horfa á hvernig óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn,
þú hefur gert Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig
og engin plága nálgast tjald þitt
11því að þín vegna býður hann út englum sínum
til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér
svo að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú munt stíga yfir ljón og nöðru,
troða fótum ungljón og dreka.
14Þar sem hann er mér trúr bjarga ég honum,
ég vernda hann því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig mun ég bænheyra hann,
ég er hjá honum í neyðinni,
ég frelsa hann og geri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga
og læt hann sjá hjálpræði mitt.
Guð blessi þig og umvefji.
Helena Leifsdóttir,formaður Aglow í Garðabæ
Aglow er; Alþjóðlegt Kærleiksnet kvenna
Aglow er ; Alþjóðlegt bænanet kvenna
1.9.2008 | 09:52
Neyðarkall - Geturðu bjargað barni?
Inná heimasíðu ABC barnahjálpar er að finna þessa áskorun til okkar,þjóð sem er stærsta þjóð í heimi í hugsun og vilja til að ná árangri sbr. silfur á Olympiuleikum.
Við eigum GULL að gefa,göngum í lið með ABC barnahjálp sem er alíslenskt hjálparstarf og hjálpum !
--------------------------------------------------------
Fall krónunnar hefur ekki farið fram hjá neinum og hefur ABC barnahjálp hefur ekki farið varhluta af því ástandi.
Um 12 þúsund börn eru í skólum og barnaheimilum ABC barnahjálpar í hinum ýmsu löndum og kostar yfir 27 milljónir á mánuði að sjá fyrir þessum stóra barnaskara miðað við gengi krónunnar í dag. Íslenska krónan hefur fallið yfir 40% frá áramótum sem er þriðja mesta fall allra gjaldmiðla í heiminum á þessum tíma. Þegar svo við bætist hækkun matarverðs í heiminum sem er verulegt vandamál í þeim löndum sem ABC starfar er ljóst að endar ná hvergi nærri saman.
Allir sjóðir ABC eru nú uppurnir og þó hefur ekki verið hægt að senda nauðsynlegt fjármagn til barnanna. Matarreikningar hafa hlaðist upp og þolinmæði birgja er á þrotum.
Í svona árferði væri eðlilegast að skera niður og senda á brott þau börn sem enn vantar stuðningsaðila, en það er ekki valkostur í hugum okkar. Við viljum berjast fyrir börnunum okkar sem mörg hver hafa komið úr ömurlegum aðstæðum og hafa leitað á náðir starfsins í neyð sinni.
Hefðir þú tök á að hjálpa einu barni svo að hægt sé að tryggja því örugga dvöl á heimili og/eða skóla ABC barnahjálpar. Það kostar ekki nema 2500 kr./mán. að sjá barni fyrir skólagöngu með skólamáltíðum, bókum og öðru tilheyrandi skólanum. Ef barnið dvelur á barnaheimili ABC eða heimavist með fullri framfærslu er þessi kostnaður 3900 kr./mán.
Vinsamlegast smelltu hér ef þú vilt taka að þér að styðja barn.
Reikningur ABC til að mæta brýnustu þörfum barnanna er nr. 1155-15-41411
Kennitalan er: 690688-1589.
Heimasíða ABC barnahjálpar
Blessunaróskir til ykkar allra kæru vinir.
Helena
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2008 | 23:20
Poppmessa á Ingólfstorgi á Menningarnótt !
21.8.2008 | 15:15
Á Yaris í Landmannalaugar !
Vaðið krefst varúðar !
Í gær ákváðum við að skreppa í Landmannalaugar á okkar fjölskyldu fjallajeppa sem er auðvitað nauðsynlegt að eiga ef maður ætlar að kíkja útfyrir bæjarmörkin.Með gott nesti úr ísskápnum og sól í heiði var lagt af stað. Við ákváðum að fara uppmeð Galtarlæk og njóta þess að horfa á Heklu ,síðan var ákveðið að fara Landmannaleið og skoða Landmannahelli. Þessi leið er miklu fallegri en Landmannalauga-afleggjarinn sjálfur, en eitt eiga þær sameiginlegt það eru vegirnir sem voru afleitir ég dáðist af ferðmamönnum,á hjólum,gangandi í rykinu og þessum tveimur sem keyrðu uppeftir á Toyota Yaris sem hristist og skalf á þvottabrettinu í samtals 54 km. Þau veifuðu og brostu til okkar
alsæl. / Góður þessi ;How do you like Iceland ?
Spurning hvort tími jeppabílsins sé ekki runnin á enda!
Kær kveðja.
Helena
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 21:55
HVAÐ ER I MATINN ???
Hvað er í matinn?
Þessi stórmerkilega setning hefur hljómað í eyru mín sl. ár og daga eða allt þar til ein af mínum ofurkláru vinkonum sem er að sjálfsögðu Aglowkona benti mér á lausnina einn fagran sumardag. Synir mínir þrír og eiginmaður hljóma eins og skemmtilegur kvartett þegar þeir syngja saman við eldhúsborðið eða í GSM Hvað er i matinn í kvöld? Og ég sem er yfirleitt önnum kafin við önnur viðfangsefni svara yfirleitt ætli við höfum ekki bara fisk með soðnum kartöflum eða borðum bara loftið. Eigilega finnst mér drepleiðinlegt að hugsa um matarinnkaup og skipuleggja hvað ég ætli að hafa í matinn næstu daga eða vikuna fyrir fjölskylduna. Í dag skiptir þessi krísa mig engu máli því ég hef fundið dásamlega lausn sem fyrrnefnd vinkona benti mér á.
Á Íslandi er er veitt sérstök þjónusta fyrir fólk eins og mig,meira að segja fæ ég vikulega sent á netfangið mitt Matseðil vikunnar og Innkaupalista. Stelpur mínar og góðir drengir hér er heimasíðan HVAÐ ER Í MATINN njótið vel þvi hvað er yndislegra en velskipulagt heimilshald og meiri frítími!!
Borðbæn
Kæri Faðir,þakka þér fyrir mat og drykk,blessun þína og náð.
Í Jesú nafni / Amen
Kær kveðja úr Garðabænum
Helena Leifs.