Er kærleiksboðskapur hættulegur?

Spyr Kolbrún Bergþórsdóttir ( í 24stundir í dag). Sem stendur með Guði,Kristi og englunum.Kolbrún er með betri pennum landsins enda rennur Strandablóð í æðum hennar.Kolbrún fær Gullpálmann frá Aglow í Garðabæ og blessunarbænir!

 

... Er það ekki bara af hinu góða að börn fái að heyra af Guði, Jesúbarninu og englunum?

Ég hefði haldið að það veitti nú ekki af slíkri fræðslu í hálftrylltum heimi þar sem menn eru sífellt að lenda á villigötum. Ef einstaklingar ætla að eignast hugarró verða þeir að hafa innri áttavita.

Þann áttavita eignast menn helst með því að tileinka sér fagnaðarboðskap. Og það er farsælast fyrir einstaklinga að kynnast þeim boðskap sem fyrst. Leitt að leikskólarnir skuli neita að taka þátt í svo nauðsynlegri fræðslu

Öll greinin hennar Kolbrúnar.

Við erum kristin þjóð og Guði sé lof fyrir það!

Kristintrú er kennd en ekki boðuð...
Skólinn í hverfinu mínu kennir kristnifræði,goðafræði og. fl. trúarbrögð.Ekki hefur það truflað okkur á neinn hátt enda er hér um fræðslu og kynningu að ræða.Synir mínir höfðu gaman af. Ásatrú fékk áberandi mikla umfjöllun, ekki leit ég á það sem trúboð heldur fræðslu. Ég held að menn verði að gera greinarmun á kristniboði og fræðslu.Biblíusögur eru skemmtilegt fag.

Við erum kristin þjóð.
Stjórnarskrá okkar er byggð á kristnum gildum og siðfræði trúarhefðar okkar. Það hefur margsinnis sýnt sig að þegar á reynir td. í náttúruhamförum og alvarlegum slysum að kirkjur landsins hafa fyllst af fólki sem leitar huggunar í trúnni á Jesúm Krist. Hér í Garðabæ leituðu unglingarnir okkar inní kirkjuna þegar ung stúlka beið bana í bílslysi fyrir 2 árum,skólinn tók einnig þátt í sorg þeirra og söknuði. Þá gengdi bænin og huggun frá Orði Guðs Biblíunni lykil hlutverki. Kristin trú er okkur í blóð borin,látum engan taka þann arf frá okkur.

Við erum kristin þjóð.
Þeir sem flytja hingað til landsins setjast ekki hér að til að umbylta þjóðfélagi okkar né kristinni trú. Á sama hátt og ef við flytjum til Indlands eða Jórdaníu verðum við að aðlaga okkur að þeirra hefð og menningu.Það þýðir samt sem áður ekki að fólk þurfi að afneita trú sinni.Þessvegna skil ég ekki hvernig við ætlum að vera sá gestgjafi sem ætlar að þóknast öllum er hingað flytja.Í mínum huga kallar það á ringulreið.

Guð blessi ykkur öll.

Helena Leifsdóttir,formaður Aglow í Garðabæ 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki láta svona, ég er íslendingur og trúfrjáls, það er ekki verið að banna neitt, bara að segja að trúboð á ekki heima í skólum, ef trúaðir skilja þetta ekki þá segir það allt sem þarf að segja um þá

DoctorE (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 12:39

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Veit fátt ógeðfeldara en að menga huga ungra barna með lygasögum og rugla í þeim fyrir lífstíð með því að halda því endemis bulli fram að þær séu sannar!

Georg P Sveinbjörnsson, 30.11.2007 kl. 20:14

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

að auki er það óþolandi heimskulegt að halda því fram að kærlei, kur standi og falli með kristini trúgirni, það kærleiksríkasta fólk sem ég þekki er allt algerlega laust við trúarbragða kreddur og vill ekki vita af sklíku lygabulli nálægt sér og sínum, það er eins og að sumir haldi að góðmenska og umburðarlyndi fyrir ÖLLUM sé einungis þeim gefið sem játa kristna trú...þvílík della.

Georg P Sveinbjörnsson, 30.11.2007 kl. 20:19

4 identicon

DoktorE

Skilur þú ekki að það er ekki verið að tala um trúboð heldur kennslu/fræðslu? Það má sem sagt ekki heldur fræða börnin um önnur trúarbrögð? Hvernig getur þú sagt að það sé ekki verið að banna neitt ef þú vilt láta banna kristinfræði í skólum? Ég get alla vegana ekki skilið þig öðruvísi.

Georg.

Það er enginn að halda því fram að kærleikurinn standi og falli með kristinni trúgirni (? skil ekki alveg þetta orðalag).

Þið verðið kannski bara að fara að sætta ykkur við að þið búið í kristnu landi þar sem kristin gildi eru talin af hinu góða af megin þorra manna.

Þórhildur (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband