25.11.2008 | 13:55
Engillinn minn heitir " mamma"
Ég veit að þessi saga er ekki ný, því margar okkar hafa séð hana í e-maili en innihald
hennar á erindi til okkar í dag, hlýjar um hjartarætur og hvetur til dáða.Gott að vita að
mæður eru útvaldar af Guði fyrir litlu gullin, börnin okkar.
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,
en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.
Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja
og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur.
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga
og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki
tungumálið sem mennirnir tala ?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur
tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engillinn þinn á
eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun
ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og
guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara "Mömmu"
Mæður Guð blessi ykkur.
Helena
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Yndisleg lesning.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 11:38
Takk fyrir heimsóknina, Guð blessi þig
Helena Leifsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:29
Sæl og blessuð
Falleg saga. Nóg að gera á blogginu hjá þér, fullt af færslum.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.11.2008 kl. 20:34
Hæhæ, ég las þetta ekki fyrir svo löngu, og mér þótti þetta svo yndislega sætt. Takk fyrir að skella þessu inn á bloggið.
Takk fyrir síðast btw vona að við fáum að hittast aftur við tækifæri.
bk.
Linda.
Linda, 30.11.2008 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.