Íslendingar fá aðstoð í Óðinsvéum

Hátt í 20 íslenskar fjölskyldur sem búsettar eru Óðinsvéum á Fjóni hafa leitað eftir matvælaaðstoð Hjálpræðishersins í borginni að undanförnu. Að því er fram kemur í dagblaðinu Fyens Stiftstidende er efnahagskreppan á Íslandi ástæða fjárhagserfiðleika þeirra.

Talsmaður hersins sem blaðið ræðir við segir að hjálparbeiðnum hafi almennt fjölgað mikið síðastliðnar vikur. Í venjulegu árferði megi búast við að 300 fjölskyldur leiti ásjár hersins um jólaleytið en nú óski yfir 500 fjölskyldur eftir aðstoð. Fólkið fær að gjöf úttektarmiða í stórmörkuðum borgarinnar að upphæð 400-700 danskar krónur ( ísl.kr.9.000 -16.000 )en í sumum tilfellum er þörf á enn meiri aðstoð./ruv.is

Hjálpræðisherinn á Íslandi skipar stóran sess í huga okkar og ber ég sjálf mikla virðingu fyrir óeigingjörnu starfi þeirra. Nú fer sá tími í hönd sem hvað mest mæðir á sjálfboðaliðum og starfsfólki hersins,  gefum rausnarlega í Jólapotta Hjálpræðihersins, kaupum Herópið blað fullt af kærleika og von, hjálpum vinum okkar að hjálpa öðrum. Hjálpræðisherinn á Íslandi

Birna Dís bloggvinkona mín skrifar þessi orð 2. des

...Ég kaupi minna fyrir mig þessi jól. Bruðla ekkert og set frekar pening til þeirra sem þarfnast þess með. Barnafólk sem lýður skort.Hvernig væri að við tækjum flest að okkur eina fjölskyldu sem á erfitt og léttum þeim lífið. Enginn þarf að vita hver "engillinn"er.5000 krónur kæmu einstæðri móðir eða fjölskyldu þar sem er engin vinna er vel.
BD/

Styrkur okkar á Íslandi er fólgin í smæðinni sem fæðir af sér samhug og vináttu til hvers annars
látum ekki bölmóð fjölmiðla ræna okkur voninni, baráttu andanum og íslenska húmornum.
Höldum áfram að biðja fyrir hvort öðru, ráðamönnum og ríksistjórn. Kristin trú er eina trúin sem gefur VON. Hjálp okkar er fólgin í Nafni Drottins, Hann mun aldrei bregðast, er ekki komin tími til að allir sem eitt biðji bænina " Himneski faðir viltu hjálpa okkur, viltu endurreisa og gefa nýja von fyrir land og þjóð, fyrirgefðu okkur að við gleymdum þér í dansinum kringum gullkálfinn, við þörfnumst þín. Í Jesú nafni / amen

Guð blessi ykkur kæru vinir.
Helena

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Bloggvinkona mín + vinkona, Kristín sem býr í Velje í Danmörku hefur fengið synjun frá Hjálpræðishernum um hjálp. Hún hefur líka fengið neitun hjá kommúnunni. Aftur á móti er kommúnan í Horses verið að hjálpa fólki þar.

Óskar bloggvinur minn + vinur skrifaði tvær færslur um Kristínu á blogginu sínu.

Þú getur fundið Kristínu og Óskar á blogginu mínu.

Kristín hringdi í mig í dag en hún er svo lánsöm að hafa ókeypis síma. Hún bar sig mjög illa.

Viltu biðja fyrir henni.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.12.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Sæl Rósa mín.

Leitt að heyra um Kristínu vinkonu þína og erfiða stöðu hennar í Danmörku. Af hverju er beiðni hennar hafnað um aðstoð ? Þegar við bjuggum útí Svíþjóð fyrir alllöngu síðan í síðustu kreppu sem reið yfir landið 1970-1975 fluttu margar fjölskyldur út til Svíþjóðar. Var ég túlkur fyrir þá sem þess þurftu... mér fannst mjög góður skilningur hjá féló á högum margra íslendinga sem gekk erfið lega að fóta sig.

Vonandi leysist úr hennar málum á næstu dögum.
Guðs blessun til þín mín kæra.
Helena

Helena Leifsdóttir, 4.12.2008 kl. 23:29

3 identicon

Guð blessi þig

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Sæl og blessuð Birna Dís, dugmikla kona.

Takk fyrir hlýja kveðju - Guð blessi þig, heimili þitt og fjölskyldu.
Kær kveðja.
Helena

Helena Leifsdóttir, 5.12.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband