Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
6.12.2007 | 12:50
Jólafundur Aglow í Garðabæ í kvöld !
Fimmtudagskvöldið 6. des. kl.20.00 í Skátaheimilnu í Garðabæ mun ilmur aðventu fylla húsið. Við kertaljós og ljúfa jólatónlist ásamt heitu súkkulaði og gómsætum veitingum verður kvöldið yndislegt. Það er gott að koma saman og fylla hug og hjarta í hlýlegu umhverfi sem nærir anda og sál.
Halldóra Ásgeirsdóttir les Jólasögu.
Agnes Eiriksdóttir ritari Landsstjórnar á Islandi flytur hugleiðingu.
Agnes hefur starfað með Ungu fólki með hlutverk og er ein af frumkvöðlum Isl. Kristskirkjunnar. Agnes er mikil bænakona og flytur Guðs Orð af einlægni og kærleika.
Söngur og tónlist fyllir húsið.Fyrirbæn og beðið fyrir bænaefnum.
Aglow-kvöld er einstakt kvöld sem engin kona má missa af.
Þú ert hjartanlega velkomin.
Ég vil dvelja í skugga vængja þinna.
Ég vil þiggja þann frið, er færir þú.
Nóttin kemur, en ég mun ekki hræðast,
er ég dvel í skugga vængja þinna.
:,: Í skugga, í skugga,
í skugga vængja þinna. :,:
Undir vængjum hans má ég hælis leita,
trúfesti hans er skjöldur minn.
Örvar fljúga en ég mun ekki hræðast,
er ég dvel í skugga vængja þinna.
:,: Í skugga, í skugga,
í skugga vængja þinna. :,:
Texti Sálmur 91
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 12:29
Er kærleiksboðskapur hættulegur?
Spyr Kolbrún Bergþórsdóttir ( í 24stundir í dag). Sem stendur með Guði,Kristi og englunum.Kolbrún er með betri pennum landsins enda rennur Strandablóð í æðum hennar.Kolbrún fær Gullpálmann frá Aglow í Garðabæ og blessunarbænir!
... Er það ekki bara af hinu góða að börn fái að heyra af Guði, Jesúbarninu og englunum?
Ég hefði haldið að það veitti nú ekki af slíkri fræðslu í hálftrylltum heimi þar sem menn eru sífellt að lenda á villigötum. Ef einstaklingar ætla að eignast hugarró verða þeir að hafa innri áttavita.
Þann áttavita eignast menn helst með því að tileinka sér fagnaðarboðskap. Og það er farsælast fyrir einstaklinga að kynnast þeim boðskap sem fyrst. Leitt að leikskólarnir skuli neita að taka þátt í svo nauðsynlegri fræðslu
Við erum kristin þjóð og Guði sé lof fyrir það!
Kristintrú er kennd en ekki boðuð...
Skólinn í hverfinu mínu kennir kristnifræði,goðafræði og. fl. trúarbrögð.Ekki hefur það truflað okkur á neinn hátt enda er hér um fræðslu og kynningu að ræða.Synir mínir höfðu gaman af. Ásatrú fékk áberandi mikla umfjöllun, ekki leit ég á það sem trúboð heldur fræðslu. Ég held að menn verði að gera greinarmun á kristniboði og fræðslu.Biblíusögur eru skemmtilegt fag.
Við erum kristin þjóð.
Stjórnarskrá okkar er byggð á kristnum gildum og siðfræði trúarhefðar okkar. Það hefur margsinnis sýnt sig að þegar á reynir td. í náttúruhamförum og alvarlegum slysum að kirkjur landsins hafa fyllst af fólki sem leitar huggunar í trúnni á Jesúm Krist. Hér í Garðabæ leituðu unglingarnir okkar inní kirkjuna þegar ung stúlka beið bana í bílslysi fyrir 2 árum,skólinn tók einnig þátt í sorg þeirra og söknuði. Þá gengdi bænin og huggun frá Orði Guðs Biblíunni lykil hlutverki. Kristin trú er okkur í blóð borin,látum engan taka þann arf frá okkur.
Við erum kristin þjóð.
Þeir sem flytja hingað til landsins setjast ekki hér að til að umbylta þjóðfélagi okkar né kristinni trú. Á sama hátt og ef við flytjum til Indlands eða Jórdaníu verðum við að aðlaga okkur að þeirra hefð og menningu.Það þýðir samt sem áður ekki að fólk þurfi að afneita trú sinni.Þessvegna skil ég ekki hvernig við ætlum að vera sá gestgjafi sem ætlar að þóknast öllum er hingað flytja.Í mínum huga kallar það á ringulreið.
Guð blessi ykkur öll.
Helena Leifsdóttir,formaður Aglow í Garðabæ
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.11.2007 | 12:18
Dömur... Aglow á Akureyri í kvöld.
Það er ekki uppselt né fráteknir miðar á Opið hús hjá Aglowkonum á Akureyri í kvöld 19.nóvember.Fundurinn hefst kl.20.00 í þjónustu-miðstöðinni
Víðlundi 22.
Allar konur norðan heiða eru velkomnar!
Edda Swan formaður Landsstjórnar Aglow á Íslandi.
Frábær ræðukona heimsækir þær Aglowkonur í kvöld sem vert er að kynna nánar.Edda Swan er formaður Landsstjórnar Aglow á Islandi, Edda hefur mjög góða yfirsýn og reynslu af Aglow starfinu víða um heim.Edda er forseti Evrópustjórnar Aglow og situr einnig í stjórn Aglow International.Hún hefur haldið fyrirlestra víðsvegar um Island og Evrópu,verið ræðukona á ráðstefnum og leiðtogahelgum Aglow International, þekking hennar á Guðs Orði og fyrirbæna þjónusta hefur verið mörgum konum til blessunar og hvatningar.
Við tökum lagið saman og sláum á létta strengi með Olgu og sönghóp þeirra Aglow kvenna á Akureyri.
Ertu með bænarefni eða þarftu að fá fyrirbæn fyrir sjálfa þig eða fjölskyldu þína? Aglow konur eru bænakonur við viljum fá að biðja með þér.
Aglow kvöld á Akureyri er gæðakvöld sem engin kona má missa af.
Við hlökkum til að sjá þig; Mánudaginn 19.nóvember kl.20.00 í þjónustumiðstöðinni Víðilundi 22
Frið læt ég eftir hjá ykkur,minn frið gef ég ykkur.
Minn friður er ekki hverfull eins og sá friður sem heimurinn gefur,
verið því hvorki kvíðafullir né hræddir.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 19:51
Kraftaverk á samkomu AGLOW í Vestmannaeyjum.
Gull óx úr lófa mínum
Árný Heiðarsdóttir Aglow-kona er nýkomin heim frá Kanada en þar tók hún þátt í ráðstefnu hjá lifandi kirkju sem heitir Airport Christian Fellowship. Árný upplifði mjög merkilega hluti sem margir hér heima geta tekið undir að er raunveruleiki " gull" fyllti hendur fólks á Bæna-ráðstefnunni í FG í 12-14.okt.sl.
Halldóra Ásgeirsdóttir ein af stjórnarkonum Aglow í Garðabæ upplifði svipað heima í stofu á bænastund er gullsandur frá himninum fyllti lófa hennar.
"Mikið hefur verið talað um þá vakningu sem hefur átt sér stað í þessum söfnuði í Kanada að undanförnu. Lindin hefur fjallað um málið og það var þar sem ég heyrði af þessari ráðstefnu segir Árný og ákvað að skella sér út til Kanada.
Upplifði kraftaverk og sá stórkostlega hluti gerast
"Í þessari ferð upplifði ég stórkostlega hluti, þarna inni var gríðarlegur lækningarmáttur og andi Drottins var greinilega að vinna í fólkinu þarna. Við fylltumst öll af heilögum anda og ég hef aldrei upplifað annan eins kraft og blessun. Þarna læknaðist m.a. maður sem var með krabbamein í tungunni og haldinn illum anda og fékk hann lækningu á staðnum"
Nú segist þú hafa séð gull vaxa úr líkömum fólks og þú sást gull vaxa úr lófa þínum, hvernig gerðist þetta?
"Það kemur til mín ung kona frá Toronto þar sem við erum að dansa og lofa Drottinn og hún sýnir mér hendur sínar og þar sé ég að þær eru þaktar gulli. Ég stoppa og stari á þetta í langan tíma og ætlaði ekki að trúa því sem ég sá. Við þetta lít ég í lófann minn og sé þá að gull er byrjað að vaxa þar, þetta byrjar smátt en verður alltaf meira og á endanum eru báðir lófar mínir þaktir gullryki.
Nú tókstu með þér heim sýni til að sanna mál þitt og þú settir það í rannsókn, hvað hefur komið út úr þeim rannsóknum?
"Ég byrjaði á því að fara á gullbúð á laugarveginum og sá fyrsti sagði að þetta væri eins og masínt glimmer og málmur sem er notaður í trompet. Næst fer ég til gullsmiðsins "Jón og Óskar" á laugaveginum og bið þá að athuga fyrir mig hvað þetta gæti verið. Þar var sýnið sett í sýru og ef það er óekta þá bráðnar sýnið eins og skot en það gerði það ekki eftir sýrubaðið.
Þeir sögðu þar að þetta gæti verið pírit steinn eða gull en hvatti mig að fara með þetta í rannsókn til Nýsköpunarmiðstöð Íslands ef ég vildi vita nákvæma niðurstöðu."
Sýni rannsökuð hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Hvaða niðurstöður komu úr rannsóknum Nýsköpunarmiðstöðvar?
"Sá sem ég hitti þegar ég kom í Nýsköpunarmiðstöðina tók sýni og setti í smásjá og sagði að þetta væri eins og sex strengjahliða steinar. Ég fæ að skoða þetta og þetta var svo fallegt, þetta var svart og gull í kringum þetta og fjórir steinar fastir saman.
Samkvæmt frumefnagreiningu Nýsköpunarmiðstöðvar eru sýnin samsett úr fjórum frumefnum og hafa þeir ekki séð svona samsetningu áður."
Kraftaverk á AGLOW fundi
Nú gerðist það aftur á fundi AGLOW kvenna í Vestmannaeyjum að gullið byrjaði að vaxa í lófa þínum á ný, hvernig gerðist það?
"Ég kem til eyja á þriðjudagskvöldi og fer á AGLOW fund á miðvikudagkvöldi og þar segi ég konunum frá ferð minni til Kanada. Svo í lofgjörðinni gerist það að þetta byrjar aftur að vaxa í höndunum á mér. Og þegar ég lít niður þá er þetta byrjað að sáldrast niður á skóna mína. Og konurnar þarna sáu hvað var að gerast og gátu þær tekið gullið upp úr gólfinu og skoðað. Þetta sannar án alls vafa að Guð er til".
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2007 | 18:41
Nei... ekkert !
Ég lá heima á sjúkrabeði og fylgdist spennt með fjölmiðlum um helgina. Í mínum huga var það ekki spurning að fjölmiðlar sæu ástæðu til að birta myndir og fréttabort frá Bænagöngu sem bar yfirskriftina " Gengið gegn myrkri" gengið var frá Hallgrímskirkju sem í huga okkar margra er drotting Reykjavíkur.Þrjuþúsund manns gengu niður á Austurvöll til að eiga bænastund fyrir landi
og þjóð.
Ekki er vanþörf á finnst mér, eftir fréttir af hryllilegri nauðgun sem framin var um helgina.
Enn einusinni var kona fórnarlamb ofbeldis og misindismanna.
Ég hlustaði og horfði og vafraði á milli mbl.og vísir ... Nei ekkert !
Lindin Kristilegt útvarp var með útsendingu frá göngunni, en hinsvegar héldu fjölmiðlar ekki vatni yfir opnum nýrrar leikfangaversl. í Garðabæ,viðtöl og myndir af herlegheitunum.
Dagblöðin sáðu heldur ekki ástæðu til að fjalla um gönguna sem var í allastaði til sóma og til að gleðja alla þá sem vilja vekja þjóðina til umhugsunar um hver staða hennar er í dag á 21 öldinni.
Þjóð sem ekki fyrir alllöngu síðan las húslestra á kvöldin bað bænir og signdi sig,þjóð sem bar virðingu fyrir skaparanum og treysti á hjálp hans.
Nei,gott fólk ! þjóðin þarf á vakningu ljóssins að halda,þessvegna þurfum við að nema staðar og spyrja okkur ætlum við að sætta okkur við meira myrkur? Ætlum við að sætta okkur við að fl. konum sé misþyrmt á götum borgarinnar,ætlum við að sætta okkur við ofbeldið ,hatrið ,reiðina mannfyrirlitininguna,girndina sem tekur völdin um helgar í miðbæ Reykjavikur? Ef einhvern tíma er þörf á BÆNAVAKNINGU er það í dag.
Stöndum vörð um kristin gildi og siðferði það er skylda okkar!
Blessun og friður úr Garðabænum.
Helena
ps. Tónleikarnir i Höllinni eru hér á myndbandi
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2007 | 14:18
Hvað er hægt að gera með tvær tómar hendur?
Tveir menn voru á gangi, annar roskinn. hinn ungur.Það lá illa á
unga manninum.Hann kvartaði yfir að eiga í fjárhagskröggum og
lítil von væri að úr rættist.Félagi hans gaf honum góð og skynsamleg ráð.
En ungi maðurinn greip fram í fyrir honum og sagði: Hvað er svo sem
hægt að gera með tvær tómar hendur?
Roskni maðurinn horfði alvarlega á hann og sagði vingjarnlega
"Þær eigum við að leggja saman í bæn til Guðs"
Þegar fokið er í flest skjól þá er leið bænarinnar greiðfær.Þeirri leið fær enginn lokað.
Það er einmitt rétti tíminn að koma til Guðs þegar hendur okkar eru tómar, enda eru tómar hendur skilyrði þess að vera ríkur í Guði.Hann er læknir sjúkra,auðlegð fátækra og aðstoð úrræðalausra.
Biblían segir þá sæla sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti.
Og þó að við séum komin á ystu nöf í hörðum átökum lífsins, getum við samt spennt greipar í bæn til Guðs.Enda þótt okkur finnist við óverðuga að ganga fram fyrir Guð megum við koma fram fyrir auglit hans sem er fúsari að gefa, en við að biðja.
Guð mun af auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú uppfylla sérhverja þörf yðar. Fíl. 4.19.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 00:32
Aglow í Garðabæ - Bænaganga 2007
Þú ert hjartanlega velkomin að eiga frábært Aglow kvöld með okkur.
Andinn sameinar okkur
Andinn sameinar okkur, eining Guð okkur gaf.
Andinn sameinar okkur, eining Guð okkur gaf
Öll við biðjum að eining breiðist yfir land og haf
Okkur vitni skal bera elska Guðs, elska Guðs
Okkur vitni skal bera elska Guðs
Saman höldum við áfram, hönd í hönd fram á slóð
Saman höldum við áfram, hönd í hönd fram á slóð
Saman flytjum þá frétt að Guð vill frelsa þessa þjóð
Okkur vitni skal bera elska Guðs, elska Guðs
Okkur vitni skal bera elska Guðs
Áfram störfum við saman, stöndum þétt öðrum hjá
Áfram störfum við saman, stöndum þétt öðrum hjá
Stöndum vörð um að reisn og virðing víki engum frá
Okkur vitni skal bera elska Guðs, elska Guðs
Okkur vitni skal bera elska Guðs
Guð blessi þig.
Aglow í Garðabæ
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2007 | 18:29
Jafnvel þó að þú sért ekki trúuð manneskja, þá ættirðu að lesa þetta.
Það er mjög einkennilegt hvernig þetta kom til. Jafnvel þó að þú sért ekki trúuð manneskja, þá ættirðu að lesa þetta. Svo skrifar Sigurður Ægisson í mbl. í dag 4/11 hann vísar í tölvupóst sem mörg okkar hafa fengið og er óneitanlega mjög merkilegt...Lestu hvað Sigurður skrifar...
Spurning: Hver er stysti kaflinn í Biblíunni?
Svar: Sálmur 117.
Spurning: Hver er lengsti kaflinn í Biblíunni?
Svar: Sálmur 119.
Spurning: Hvaða kafli er í miðjunni á Biblíunni?
Svar: Sálmur 118.
Staðreyndir:
Það eru 594 kaflar á undan 118. Davíðssálmi. Það eru 594 kafla á eftir 118. Davíðssálmi. Leggðu þessar tölu saman og þá færðu út 1188.
Spurning: Hvaða vers er í miðjunni á Biblíunni?
Svar: Sálmur 118:8.
Segir þetta vers eitthvað um merkingu þess, að Guð vill fullkomna vilja sinn í lífi okkar?
Næst þegar einhverjir tala um að þeir vilji sjá hinn fullkomna vilja Drottins með líf sitt og að þeir vilji vera hluti af Hans vilja, einfaldlega sendu viðkomandi að miðjunni í orði Hans.
Sálmur 118:8 er svona: "Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum."
Er ekki furðulegt hvernig þetta kemur út eða stendur Drottinn á bak við þetta?
Áður en ég sendi þetta til þín fór ég með stutta bæn fyrir þig. Hefur þú mínútu? 60 sekúndur fyrir Guð? Það eina sem þú þarft að gera er að fara með stutta bæn fyrir þeim sem sendi þér þetta: "Kæri faðir, viltu blessa og varðveita vin minn í því sem hann tekur sér fyrir hendur á hverjum degi. Viltu fylla líf hans með friði, velsæld og krafti til að eiga nánara samfélag við þig. Amen."
Sendu þetta síðan til 10 einstaklinga. Innan klukkustundar hafa þeir beðið fyrir þér og þú hefur haft áhrif á fólk til þess að það biðji fyrir öðrum. Slakaðu síðan á og vertu vitni að krafti Drottins að störfum í lífi þínu fyrir það eitt að gjöra Hans vilja.
"Þegar erfiðleikar steðja að, mundu það eitt að trúin kemur þér ekki framhjá vandanum, trúin leiðir þig í gegnum vandann."
"Þegar þú losar um löngunina til að stjórna þinni eigin framtíð, muntu öðlast hamingju."
Megi Drottinn blessa þig.
Hér skal áréttað, að umrædd Biblía hefur ekki verið með apókrýfu ritununum, eins og sú nýjasta íslenska. Með innkomu þeirra raskast framannefnt, en eflaust kemur bara einhver annar gullmoli í ljós í staðinn.
En áþekka speki og hér á undan var tilfærð rakst ég á í ævagömlu blaði fyrir nokkrum árum. Hún bar yfirskriftina "Einkennilegt" og var ekki síðri. En þar sagði orðrétt:
Fyrsta spurningin í Gamla testamentinu er þessi: "Hvar ert þú?" (1. Mósebók 3:9). Það er spurningin eftir hinum syndaseka manni, og það er Guð sem spyr.
Fyrsta spurningin í Nýja testamentinu er þessi: "Hvar er hann?" (Matteusarguðspjall 2:2). Það er spurning eftir hinum nýfædda konungi, frelsara syndaranna, Jesú Kristi, og það er maðurinn sem spyr.
Óneitanlega er þetta æði merkilegt, hvort tveggja./ SÆ
Eða hvað finnst ykkur ?
Orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda liðamóta og mergjar,það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans. Heb.4;12
18.10.2007 | 19:56
Aglow á Islandi 20 ára
Afmælishátíð á Grand Hótel um helgina!
Það er í rauninni ótrúlegt að fyrir tuttugu árum síðan komu fáeinar konur saman á Grand Hótel í Reykjavik til að halda fyrsta Aglow fundinn.Það var fallegt haustveður þennan eftirmiðdag og mikil eftirvænting í loftinu. Fáeinum vikum áður var Aglow stofnað heima í stofu hjá Björgu Davíðsdóttur í Kópavoginum,Ásta Júlíusdóttir tók að sér að verða formaður,Björg Daviðsd ,Guðfinna Helgad. Janet Cosshall og Beverly Einarsson skipuðu fyrstu stjórn Aglow á Islandi.
Kærleiksnet kristinna kvenna markaði nýtt upphaf meðal kvenna á Islandi. Aglow sameinaði konur frá ólíkum kirkjudeildum.Konur fjölmenntu á fundi,mikil eining og gleði ríkti á meðal okkar, sterk nærvera Heilags anda og einlægur bænarandi einkenndi fundina.
Tuttugu ár er ekki langur tími þegar kristilegt starf er annarsvegar en gríðarlega margt hefur áunnist á þessum árum. "Allar sem eitt" hefur löngum verið slagorð okkar því við teljum að þegar konur sameinast og vinna í einingu að ákveðnum málefnum erum við sterkur her. Konur heilluðust af Aglow starfinu og fljótlega var stofnaður hópur í Vestmannaeyjum,síðan á Akureyri,Stykkishólmi,Hvolsvelli,Isafirði,Grundarfirði og núna í fyrra í Garðabæ. Við eigum bara eftir að nema land austur á fjörðum þá erum við búnar að mynda kærleiksnet kvenna hringinn í kringum landið okkar.
Hundruðir kvenna og heimili hafa upplifað blessun og kærleika Aglowstarfsins á Islandi,við höfum fengið að sjá guðlega lækingu,brotnar fjölskyldur sameinast,hjón hafa sameinast eftir erfiðleika,unglingar náð áttum með líf sitt,sú sem var einmanna hefur eignast vini og brotna konan sjálfsvirðingu og nýja von.
Hitamál Aglow er og verður að segja frá Jesú Kristi frelsara okkar,Guð er góður Guð.Hann hefur opinberað kærleika sinn og vilja í syni sínum Jesú.Við öll þörfnumst þess að kynnast honum. Bænin er lykill að hamingjuríku lífi,gegnum bænina kynnist ég Guði og hann talar til mín. Aglow konur eru bænakonur við leggjum áherslu á að biðja fyrir landi og þjóð,stjórnsýlsu og ráðamönnum.Staða kvenna er mikilvæg í huga okkar vegna þess að í upphafi var konan og karlinn jöfn til allra verka.Guð skapaði þau til að vinna saman standa jafnfætis,elska og virða hvort annað. Aglow International leggur sérstaka áherslu á að biðja fyrir Israel og Mið austurlöndum.
Aglow starfið er innihaldsríkt og gefandi ; Mánaðarlega er Aglow kvöld sem einkennist af gleði og frelsi,það er ekki óalgengt að 8-10 konur taki þátt í fundinum með einum eða öðrum hætti þ.e. söngur,tónlist,bæn.lestur,ræða,vitnisburður,innskot,við erum með Bæna og Leshópa sem hittast reglulega,bænagöngur um hverfi og bæjarfélög,ráðstefnur,leiðtogahelgar,ráðstefnur erlendis,ferðalög til Israel.Tengslanet og vinátta,hjálparstarf og fl.
Heimasíða okkar www.aglow.is og International heimasíðan www.aglow.org
Kíktu í heimsókn á næsta Aglowfund !
Trúmál og siðferði | Breytt 23.10.2007 kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2007 | 14:16
Aglow hreyfingin er kraftaverk !
Aglow International 40 ára afmæli
1967-2007
Jane Hansen forseti Aglow International
Aglow International hélt uppá 40 ára afmæli hreyfingarinnar í sept. sl. nánar í Seattle Washingtonfylki USA. Fjórtán íslendingar héldu utan til að taka þátt í gleðinni og var þessi ferð stórkostleg upplifun.
Aglow starfar nú meðal 170 þjóða,21 þúsund konur gegna leiðtogastörfum innan hreyfingarinnar og liðlega 17 millj. manns snerta Aglowstarfið með einum eða öðrum hætti daglega á heimsvísu.
Orðsk. 31.25 stendur "Kraftur og tign er klæðnaður hennar og hún hlær að komanda degi "þessi orð eiga vel við Aglowkonurnar.
Hátíðin sjálf stóð í 4 daga með þéttskipaðri dagskrá; Tónleikar,lofgjörð og tilbeiðsla,ræðumenn og konur,kynning á starfi þjóðanna og síðast en ekki sýst var Dagur þjóðanna ákaflega áhrifaríkur.
Hver þjóð átti sinn fulltrúa sem gekk inní salinn með þjóðfánan og ríkti mikil gæsahúð í okkar hóp þegar Rúna Loftsd. gekk inní salinn með íslenska fánann íklædd þjóðbúningi okkar sem er einn sá fallegasti að mínu mati.Við íslendingarnir vorum stolt og blessuð að fá að vera hluti af kraftaverki Guðs sem Aglow starfið er.
Aglowstarfið byrjaði við eldhúsborðið í Edmond Seattle árið 1967 við borðið sátu 4 konur sem áttu hugsjón og mynd í huga sínum að ná til kvenna.Engin þekkir heim kvenna jafnvel og konur sjálfar.Teningum var kastað fyrr en varði bættust fl. konur í hópinn,konur sem vildu biðja og leita Guðs fyrir fjölskylduna sína og þjóðfélag.
Bænanet kvenna var fætt,net sem átti eftir að verða ein stærsta og öflugasta hreyfing kvenna í heiminum.
Aglowstarfið byggist á tveimur megin stólpum; Bæn og Trúboð.
Aglow vill sjá konur endurreistar, undirbúnar og gera þeim kleift að ná því hlutskipti sem Guð hefur ætlað þeim. Aglow viðurkennir að endurreisn byrjar með frelsi í Jesú Kristi
Aglow á Islandi heldur uppá 20 ára afmæli starfsins helgina 19-20 okt. nk. á Grand Hótel. Sjö Aglow hópar eru núna starfandi hér á landi.Það er mikil blessun að eiga fólk sem biðja fyrir landi og þjóð daglega.
Fottar Aglow stelpur frá Islandi
Heimasíða Aglow á Íslandi www.aglow.is
Heimasíða Aglow International www.aglow.org